Hvers vegna er sumum illa við nafnleynd á blogginu?

Það er algjörlega búið að koma í veg fyrir það að fólk geti gagnrýnt undir nafnleynd. Morgunblaðið reið á vaðið vegna kvartana fólks sem sjálft skrifaði undir eigin nafni, en með falinni kennitölu. Það vandlætingin og husunarháttur þessa fólks sem kvartaði sem mest var ekki vegna þess að því væri svo illa við nafnleyndina, heldur hitt, það þoldi ekki að talað væri umbúðalaust á mannamáli. Tökum sem dæmi þegar ég hef farið inn á síður Sjálfstæðismanna og gagnrýnt flokkinn og stuðningsmenn fyrir óheiðarleika. Ég hef tekið sem dæmi þegar sonur Davíðs var ráðinn í feitt embætti þá komu fjöldinn allur af bloggurum og vörðu gjörninginn þrátt fyrir að engin væri svo heimskur að halda að þetta hafi ekki verið spilling. Svo spurði ég þessa bloggara hvernig þeir gætu lagt lag sitt við svona óheiðarleika. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, ég var bannaður með það sama. Hjörtur J Guðmundsson, Jón Valur Jensson, Sigurður Sigurðsson, og meira að segja Sverrir Stormsker af öllum mönnum bannaði mig á blogginu sínu fyrir þessa spurningu mína. Þetta var nú allur ruddagangurinn alla vega hjá mér og minni nafnleynd. Lang flestir bloggarar sem hafa valið það að koma fram undir nafnleynd koma vel fram, eini munurinn á þeim og hinum, er að þeir fyrrnefndu koma hreint og beint fram, en það þola þeir ekki sem hafa vondan málstað að verja.

 

En vegna þess hve bloggið hjá þeim sem skrifa undir nafnleynd er falið, þá sé ég engan tilgang í að vera skrifa hér lengur. ég tek mér annað blogg, kem þar undir nafni og kem aftur með heiðarleikaprófið fyrir Sverrir Stormsker og félaga úr Sjálfstæðisflokknum, og athuga hvort hræsnin hafi eitthvað minnkað.


Úr endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins

Útdráttur úr skýrslu endurreisnarhóps Sjálfstæðisflokksins bls. 12:

,,3) EINKAVÆÐING BANKANNA"

,,Landsbankinn og Búnaðarbankinn voru að fullu einkavæddir.
Mjög er hins vegar gagnrýnt hvernig var staðið að einkavæðingu þessara tveggja banka. Ferlið var ógagnsætt og hagstæðari tilboð fyrir ríkissjóð á alla hefðbundna mælikvarða voru sniðgengin. Ekki var fylgt upphaflegri aðferðafræði, s.s. um dreifða eignaraðild. Bankarnir lentu, að einhverju marki eftir pólitískum línum, í höndum aðila sem voru reynslulitlir í bankastarfsemi (alþjóðlegri sérstaklega). Stjórnvöld sögðu almenningi að engin ríkisábyrgð væri á bönkunum, ef svo hefði verið hefði verðið vera hærra, en sú varð raunin".

En nú heyrist annað hljóð úr skrokki!

Það leið ekki langur tími þangað til Sjálfstæðisflokkurinn sýndi sitt rétta andlit. Auðmýktin farin og hrokinn og yfirlætið komið í staðin. Í umræðunni rétt eftir hrun heyrði maður einstaka þingmenn Sjálfstæðisflokksins að það ætti að viðurkenna þau mistök sem gerð höfðu verið og biðja afsökunar. Nú láta Sjálfstæðismenn eins og þetta hafi allt saman verið einhverjum öðrum að kenna, jafnvel Samfylkingunni, af því að tveir þingmenn innan þess flokks voru sammála ykkur, þvílíkt rugl. Ég þekki ykkar aðferðir því ég var sjálfur í þessum Sjálfstæðisflokki. Taktíkin núna er sú að halda því fram svona smátt og smátt að þetta hafi ekki verið svo mikið Sjálfstæðisflokknum að kenna. Láta tímann vinna með flokknum þangað til fólk verður meira mótækilegt fyrir bullinu og síðan á að fara í rógsherferðir með smjörklípurnar að vopni, segja ósatt ef með þarf og öll meðul notuð. 


Bananalýðveldið Ísland, stjórnað af stóru klíkubandalagi

Íslendingar, við verðum að rísa upp gegn þessu bandalagi klíkuskapar og sérhagsmuna. Það vita allir hvar upptökin eiga heima, það vita allir hvaða flokkur það er sem er búinn að gegnum sýra samfélagið með sjúkdómi sínum, en engin segir neitt og ég kem fram undir dulnefni af ótta við að skapa mér og mínum óvild í þessu sjúka klíku-samfélagi. Viljum við Íslendingar hafa þetta svona, eigum við að sætta okkur við það að það séu tvær stéttir í samfélaginu, önnur sem er með framkvæmdavaldið, löggjafarvaldið og hálft dómsvaldið í höndum sér og getur lifað í refsileysi og hagað sér eins og það eigi landið? Viljum við hafa þetta svona, viljið þið sem eruð að verja spillingarbandalagið hafa þetta svona? Lengi vel var það ein fjölskylda sem réði landinu, nú er það klíkubandalag sem myndaðist út frá þessari fjölskyldu með erfðaprinsinn í forgrunni. Þvílíkt og annað eins bananalýðveldi. Ég er sannfærður að ef vel bærir erlendir aðilar myndu skoða sögu okkar kæmust þeir að því að hér ríkti eins konar einræði, einræði spilltra klíkubræðra.

Ég er kannski bara einfaldur, en þið sem styðjið hressilega við bakið á klíkuklúbbnum, viljið þið virkilega hafa það að landinu sé stjórnað með þessum klíku-hætti? Ef ekki, hættið þið þá að hjálpa þessum mönnum við að viðhalda bullinu.


Heldur seint í rassinn gripið

treachery3Myndlíking => Konan er þjóðin og skrímslið sem hokir yfir henni, er klíkudeild Sjálfstæðisflokksins.

Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, segir enn sannast hversu fráleitt er að telja bankaleynd eiga að ráða umræðum um aðdraganda hruns íslensku bankanna í dagbókarfærslu á heimasíðu sinni.

Út af hverju sagði Björn Bjarnason ekki neitt í umræðunni sem fram fór síðastliðin vetur um bankaleyndina? Var það vegna þess að þá var hann í ríkisstjórn?

Ömurlegt lið sem hoppar á vagninn til að ná í smá vinsældir handa Sjálfstæðisflokknum. Þessum flokki sem kemur núna og lætur eins og hann hafi hvergi komið nálægt klíkuskapnum sem varð þessari þjóð að falli.


Slapp Sigmundur Davíð við að borga útsvarið?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins hafði aðeins
tæpar 33 þúsund krónur í launatekjur á mánuði á síðasta ári samkvæmt
álagningunni sem birt var fyrir helgi. Vá, hann heppinn, þarf ekki að borga útsvar eins og við hin. Við munum hjálpa til og borga útsvarið fyrir hann og börnin hans svo þau geti gengið í skóla í framtíðinni.

Til þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn

Maður lesa fréttina um Björgólfana (mennina sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf Landsbankann) og svo sér maður á athugasemdakerfi eyjunnar og á bloggsíðum að Sjálfstæðismenn ætla kenna Samfylkingunni um það að ekki hafi verið selt í dreifðri eignaraðild. Það má alveg segja frá því að tveir þingmenn Samfylkingarinnar hvöttu til þess að selt yrði til kjölfestu fjárfesta. En heldur einhver í eina  sekúndu að Davíð og Halldór hafi hætt við dreifða eignaraðild af því að tveir stjórnarandstöðu þingmenn vildu að þeir gerðu það? Þvílík og önnur eins firra.

Hvernig væri nú að fólk setti sektina þar sem hún á heima? Þið sem eruð að verja Sjálfstæðisflokkinn með þessu móti hvað gengur ykkur til, er það herkænska Göbbels sem þið eruð að praktísera? Kæmi ekki á óvart komandi úr þessari átt, þar sem menn gera ekki greinarmun á réttu og röngu að því er virðist. Jú jú Samfylkingin gerði í buxurnar á þessum 18 mánuðum sem hún var í stjórn fyrir hrun, en það er ekkert miðað við 18 árin sem sérhagsmunasamband glæpamanna á Íslandi leyfði mönnum úr flokknum að ræna alla sjóði landsins og blekkti fólk með því að hér ríkti svo mikið góðæri. Svo komið þið hérna skósveinar flokksins og verjendur og ruslið skíttnum yfir á aðra. Fyrir hverja eru þið að gera þetta? Landið ykkar, þjóðina? Mikið er þetta sjúkt. Það er ekki að furða þó þessi flokkur komist upp með að gefa eignir þjóðarinnar til örfárra einstaklinga þegar flokkurinn á ykkur að, svona mikið af duglegu fólki sem ver óheiðarleikan, því svo sannarlega hjálpiði þessum mönnum til við spillinguna sem þið eruð svo sjálfir svo reiðir út í. Ég var einu sinni í þessum blessaða Sjálfstæðisflokk, en glætan að ég færi að verja óheiðarleika eins og menn virðast ekki hika við að gera hérna (á athugasemdarkerfi við fréttir á eyjunni). 

Manni blöskrar svo gjörsamlega og maður skilur ekki út af hverju háskólasamfélagið og fjölmiðlar skuli ekki rísa upp gegn þessu spillingarbandalagi. Mun Ísland aldrei losna við þetta og verða heiðarlegt? Það sem flokksmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu átt að gera á síðasta landsfundi var að biðja þjóðin afsökunar á öllu bullinu og LEGGJA FLOKKINN NIÐUR Í KJÖLFARIÐ. Þið hefðuð átt virðingu skilið fyrir slíka auðmýkt.

En nei, það var nú aldeilis ekki þannig. Hrokinn og yfirlætið er síst minna en það hefur verið hingað til. Upphrópanir og smjörklypur fljúga um loftið. Þetta er allt saman einhverjum öðrum að kenna og stefnan er sú sama og fyrr, það á bara að halda vitleysunni áfram þrátt fyrir að hafa gjörsamlega gert í brækurnar. Árni Sigfússon er svo gott sem búinn að setja Reykjanesbæ á hausinn með því að víla og díla með eiginir fólksins og helst eru það vinir og aðrir Sjálfstæðismenn sem kaupa fyrir lítið. Spillingin heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist og engin segir neitt, og engin talar mannamál.

Enda þessa færslu á eftirfarandi, enn og einu sinni og ekki veitir af til að verkja fólk.

Áratugum saman hafði klíkuþjóðfélagið grafið um sig og skapað forréttindastétt þar sem ófust saman helstu peninga- og auðlindahagsmunir þjóðarinnar og yfirráð á vettvangi stjórnmálanna. Þessi forréttindastétt hafði að lokum búið svo um hnútana upp úr aldamótunum síðustu að hún hafði framkvæmdavaldið, löggjafarvaldið og hálft dómsvaldið í höndum sér. Hún gat lifað í refsileysi við hlið réttarríkisins og bjó sig undir að ná undirtökunum á fjórða valdinu, fjölmiðlunum (Ó.R.G,. í Jóhann Hauksson á DV, 2009).


Klíkusamfélag Sjálfstæðisflokksins

Að það sé ekki hægt að koma lögum yfir þessa Kaupþings-menn sem hafa hagað sér svona, segir bara það að það hafa lifað tvær stéttir í okkar samfélagi. Björgólfarnir fengu með leyfi Sjálfstæðisflokksins að haga sér að vild. Eftirfarandi er haft eftir Ólafi Ragnari Grímssyni:

,,Áratugum saman hafði klíkuþjóðfélagið grafið um sig og skapað forréttindastétt þar sem ófust saman helstu peninga- og auðlindahagsmunir þjóðarinnar og yfirráð á vettvangi stjórnmálanna. Þessi forréttindastétt hafði að lokum búið svo um hnútana upp úr aldamótunum síðustu að hún hafði framkvæmdavaldið, löggjafarvaldið og hálft dómsvaldið í höndum sér. Hún gat lifað í refsileysi við hlið réttarríkisins og bjó sig undir að ná undirtökunum á fjórða valdinu, fjölmiðlunum" (Jóhann Hauksson á DV, 2009).

Við viljum nýtt ísland, þar sem fólk getur óhrætt tjáð sig og það eigi ekki á hættu að því sé sett stóllinn fyrir dyrnar ef það gegnrýnir eitthvað. Við eigum ekki að sætta okkur við að álika þöggun verði í þjóðfélaginu og t.d. þegar Kárahnjúkavirkjun var á teikniborðinu. Þá var gerð heimildarmynd um verkefnið og kom það kvikmyndagerðamönnum á óvart hvað það voru margir sem ekki þorðu að tjá hug sinn. Vísindamenn sem leitað var til sögðu að þair vildu ekki setja atvinnu sína í hættu með því að koma fram í myndinni. Allir voru hræddir. En við hvað? Ég held því fram að það hafi verið Sjálfstæðisflokkurinn. Sjíð bara hvernig það er í þessum blessaða flokki, það þorir engin að gagnrýna og allir eru með sömu skoðun. Benidikt Jóhannsson fékk verðlaun fyrir að tala á móti forystunni. Hugsið ykkur, hann fékk verðlaun fyrir að ÞORA. Þvílíkur flokkur. Davíð tók menn á teppið og hótaði þeim atvinnumissi ef þeir væru ekki þægir. Framið var mannorðsmorð á Jóni Ólafssyni vegna þess að hann vildi ekki ráða forstjóra á Stöð2 sem Sjálfstæðisflokkurinn fann fyrir stöðina til að halda utan um fréttir, svo þær væru hliðhollar flokknum. Hugisð ykkur alla hina fjölmiðlana, hvað með þá eigendur, þorðu þeir að segja nei eions og Jón Ólafsson? Við gott fólk eigum að viðurkenna það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gegnsýkt þjóðfélagið með klíkuskap og fjölskyldutengslum. Þeir hafa ráðið yfir allri stjórnsýslunni og ákveðnar fjölskyldur hafa passað upp á valdatengsl sín við flokkinn. Við hrunið síðastliðið haust átti forysta Sjálfstæðisflokksins að sjá sóma sinn í því að leggja þennan siðspillta flokk niður, eða er flokkurinn stærri en þjóðin og meira virði?

 

Nú hef ég verið bannaður á athugasemdakerfi eyjunnar fyrir komment sem eru eitthvað í líkingu við það sem ég skrifaði hér að ofan. Einstaklingur sem kallar sig Dúddi Bei, hefur einnig þurft að sæta því að lokað hefur verið á hann. Ekki var það fyrir þær sakir að hann væri orðljótur eða með meiðandi ummæli, heldur var það vegna þess að einhverjum fannst hann ekki tala á þeim nótum sem væru Sjálfstæðisflokknum til framdráttar. Dúddi Bei gerði það nefnilega að þykjast vera Sjálfstæðismaður og talaði eins og þeir hugsa. Einn Sjálfstæðismaðurinn sagði í athugasemd við Dúdda að hann ætti að hætta þessum skrifum vegna þess að þetta væri að skaða FLokkinn.,,þetta væri ekki flokknum til framdráttar" hét það. 

 

Hafa Sjálfstæðismenn virkilega svona mikil völd inn í fjölmiðla að þeir geti með kvörtunum sínum ráðið því hverir fá að tjá sig og hverjir ekki? Eru þeir líka með ritstjóra eyjunnar í vasanum?

 


Er eyjan.is ritskoðunarsnepill?

9c189c30Ég hef verið bannaður á eyjunni fyrir komment um að Sjálfstæðisflokkurinn sé sérhagsmunabandalag glæpamanna og að þessi flokkur hefði átt að sjá sóma sinni í því að leggja sjálfan sig niður eftir hrunið síðastliðið haust. Þessi flokkur er ekki stærri en þjóðin, en því miður hefur þessi flokkur svo dygga fylgjendur sem hika ekki við að verja óheiðarleika ef út í það er farið og ég get fært sönnur á það. Ef maður talar umbúðalaust þá skjálfa fylgjendur flokksins og ef maður talar um óheiðarleika þá verða þeir öskureiðir, enda hafa þessir aðilar vondan málstað að verja. Það er ömurlegt að ritstjóri eyjunnar skuli láta þessa ránfugla stjórna sér með þessum hætti. Ég hef bloggað á moggablogginu hátt í tvö ár og hef aldrei lent í því að vera aðvaraður eða neitt þvíumlíkt svo kem ég á eyjuna og er bannaður af því einhverjir Sjálfstæðismenn inn á kommentakerfi eyjunnar líkar ekki við það sem ég hef að segja. Málið er að ég er ekki sá eini, annar aðili sem kallar sig Dúddi Bei hefur einnig verið bannaður. En pælið í því, hann var bannaður fyrir það eitt að vera fyndinn á kosstnað Sjálfstæðismanna. Sorglegt að einn besti fréttavefur landsins skuli vera orðin spilltur ritskoðunarsnepill að hætti Sjálfstæðismanna. Það muna allir hvernig DV var stjórnað á sínum tíma af helbláum ritstjóra, enda fór það á hausinn og skyldi eftir sig skuld upp á 700 miljónir, reikningur sem sendur var almenningi, en Bjöggarnir fengu niðurfellingu á verði Landsbankanns upp á 700 miljónir sem var skuld DV við Landsbankann.

Mig langar að sem flestir fái að vita af því hvernig eyjunni er stjórnað leynt og ljóst af fólki sem er tilbúið að drepa niður gagnrýni. Ég er ekki klár á því hver er ritstjóri eyjunnar, en það eru svona tvær vikur síðan ég var útilokaður frá kommentakerfinu á eyjunni. Ég veit að Guðmundur Magnússon var ritstjóri og ég hef heyrt að Hallur Magnússon Framsóknarmaður og moggabloggari hafi tekið við af honum um svipað leiti og ég var bannaður, en ég ætla ekki að fullyrða það. Ömurlegt er það engu að síður. 

 Kveðja Valsól,

 

Afstaðan til ESB

Gott fólk, hættum að taka afstöðu til ESB út frá einhverjum hagsmunasamtökum eða stjórnmálaflokkum. Tökum afstöðu út frá okkur sjálfum, fyrir fjölskyldur okkar, veskið okkar og lífsgæði okkar. Villt þú borga íbúðarlánið þitt 17 falt til baka bara svo kvótagreifinn og óðalsbóndionn sofi vel í nótt. Eða viltu ganga í ESB og taka afstöðu með sjálfum þér og borga þetta sama lán 1,5 falt til baka?

Þetta er ósköp einfalt, tökum afstöðu út frá okkur sjálfum, látum ekki sérskipaða postula segja okkur hvað við eigum að gera og allra síst að taka afstöðu til ESb út frá því hvað kvótagreifanum finnst eða óðalsbóndanum.

Vissuð þið að vextir á Íslandi lækka um 228 miljarða á ári gagnvart heimilunum og fyrirtækjunum í landinu? Þetta þýðir það að  við þurfum miklu minna að leggja á okkur til að endar nái saman. Við getum þannig eytt meiri tíma með börnunum okkar í stað þess að þræla myrkranna á milli fyrir okurvöxtum bara svo kvótagreifinn og óðalsbóndinn og sérhagsmunir þeirri nái fram að ganga.

Hættum þessu rugli, tökum afstöðu út frá okkur sjálfum, hvert fyrir sig út frá okkar eigin hagsmunum, en ekki út frá því hvað aðrir vilja að við gerum. Spyrjum bara, hvað breytist hjá mér persónulega ef við gögnum í ESB. Okkur varðar ekkert um það hvað breytist hjá einhverjum bónda upp í sveit eða kvótagreifanum í 150 miljón króna einbýlishúsinu sínu.

Ég ætla taka afstöðu til ESB út frá veskinu mínu, ég vill ekki borga 20 miljón króna lánið mitt 17 falt til baka. Hvað með þig? Ert þú undirlægja sérhagsmunaafla og tekur afstöðu gegn sjálfum þér og fjölskyldu þinni bara svo kvótagreifinn og bóndinn geti verið rólegir?

Ég skora á alla sem eru sama sinnis og ég að dreifa þessari hugmynd út um allt. Við eigum að koma því á framfæri við sem flesta að fólk að það taki afstöðu út frá sjálfu sér en ekki sérhagsmunasamtökum.Fólk á að spyrja sig, hvað fæ ég persónulega út úr því að ganga í ESB?


Bönnum vændi og súludans fyrir fullt og allt

 

Does Legalizing Prostitution Work?

By Helen Mees

 
 

February 3, 2009

Amsterdam. Photo by Trey Ratcliff, http://flickr.com/photos/stuckincustoms/225798001/ (Creative Commons Attribution-Noncommercial-Share Alike 2.0 Generic).
 
Credit: Trey Ratcliff (CC).

Prostitution is virtually the only part of the personal services industry in the Netherlands that works. One can't get a manicure in Amsterdam without booking an appointment two weeks in advance, but men can buy sex anytime-and at an attractive price. The legalization of prostitution in October 2000 merely codified a long-standing Dutch tradition of tolerance towards buying and selling sex. But is legalization the right approach?

Even in the Netherlands, women and girls who sell their bodies are routinely threatened, beaten, raped, and terrorized by pimps and customers. In a recent criminal trial, two German-Turkish brothers stood accused of forcing more than 100 women to work in Amsterdam's red-light district (De Wallen). According to the attorney who represented one of the victims, most of these women come from families marred by incest, alcohol abuse, and parental suicide. Or they come from countries in Eastern Europe or Southeast Asia and have fallen victim to human trafficking, lured by decent job offers or simply sold by their parents.

These women are Amsterdam's leading tourist attraction (followed by the coffee shops that sell marijuana). But an estimated 50 to 90 percent of them are actually sex slaves, raped on a daily basis with police idly standing by. It is incomprehensible that their clients are not prosecuted for rape, but Dutch politicians argue that it cannot be established whether or not a prostitute works voluntarily. Appalled by their daily routine, police officers from the Amsterdam vice squad have asked to be transferred to other departments. Only this year, the city administration has started to close down some brothels because of their ties to criminal organizations.

According to a study published in the American Journal of Epidemiology, the average age of death of prostitutes is 34. In the United States, the rate at which prostitutes are killed in the workplace is 51 times that of the next most dangerous occupation for women, working in a liquor store. Other studies show that nine out of ten prostitutes urgently want to escape the job. Almost half have attempted suicide at least once.

In 1999, the Swedish government decriminalized the sale of sex, but made it an offense to pimp or to buy sex. Under Sweden's so-called "Sex Purchase Law," paying for sex is punishable by fines or up to six months in prison, plus the humiliation of public exposure. According to the Swedish authorities, the number of prostitutes in Sweden has dropped 40 percent as a result. Human trafficking rings tend to avoid Sweden, because business has gone sour.

Norway, a country that has a reputation to lose when it comes to women's rights, carefully compared the Swedish and Dutch models and concluded that Sweden's was the one to follow. It has now changed its legislation accordingly.

The success of the Swedish approach is not so surprising. According to a study in California, most men who bought sex would be deterred by the risk of public exposure. For example, 79 percent said that they would be deterred if there was a chance that their families would be notified. And a whopping 87 percent said that they would be deterred by the threat that the police might publish their photographs or names in the local newspaper.

Most of these men showed pathological behavior towards women. One in five admitted to having raped a woman, while four out of five said that going to prostitutes was an addiction.

Prostitution is often dubbed "the oldest profession." But this is merely a way of justifying the exploitation of mostly vulnerable women (there is also a much smaller number of male prostitutes in the Netherlands, but they are not pimped out like female prostitutes). It takes leadership and a vision of true gender equality to put an end to prostitution.

The Swedish practice of naming and shaming is quite un-Dutch. But, for some men, part of the pleasure of buying sex may be the humiliation conferred on the woman involved. For others, like former New York Governor Eliot Spitzer, the promise of discretion and anonymity may be the most appealing aspect of buying sex. In any case, pillorying the clients is both a just punishment and an effective deterrent.

Heleen Mees is a Dutch economist and lawyer. Her most recent book, Weg met het deeltijdfeminisme!, examines third generation feminism. She is also the author of a book on European Union law and founder of the women's action committee Women on Top.

© 2009 Project Syndicate. Republished with kind permission

Related Resources:

 


Næsta síða »

Um bloggið

Valsól

Höfundur

Valsól
Valsól

Spurt er

Trúir þú að guð sé til?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 44345

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • ...eet-posters
  • ...o_kirkjunni
  • skanna

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband